Búið.Maren Helga Guðmundsdóttir

Búið spil.
Hæ, ég nenni ekki að blogga meir! Sjáum til þegar nær dregur að jólum. Eða bara þegar ég er á Íslandinu yfir jólin.
Ritstífla sjáiði til. Ég kem heim eftir 25 daga! S.s 19 Desember og ég get ekki beðið. Þó það sé voða gott að búa hér í Lúx:)

Það er samt allt á kafi í snjó og frosti hér í Lúx..
http://photos-h.ak.fbcdn.net/photos-ak-snc1/v615/110/92/1226570636/n1226570636_197183_1516.jpg
-Maren Perupía.

Flo Rida, KLAAS, Sigurros og Kanye West á einni viku!Maren Helga Guðmundsdóttir

The image “http://photos-d.ak.fbcdn.net/photos-ak-snc1/v375/110/92/1226570636/n1226570636_185099_5322.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Ég áður en ég fór á Klaas!


Jæja Lífið er alltaf jafn fullkomið hérna!
Ég er t.d búin að fara á Flo Rida!
Ég er á leiðinni á Klaas núna á eftir!
Ég er að fara á Sigurros og Kanye West eftir helgi!

Alltaf nóg að gera og nóg að versla!

Er málið að leggja síðuna niður eða halda áfram að blogga?

-Maren LúxPera!

LúxLúxLúx.Maren Helga Guðmundsdóttir

Sæl veriði!
http://photos-d.ak.fbcdn.net/photos-ak-snc1/v375/110/92/1226570636/n1226570636_176547_9420.jpg
Lífið í Lúx er alltaf jafn frábært!
Alltaf nóg að ske og svona! Það er byrjað að skreyta fyrir jólin hérna og svona.
Veðrið er búið að vera mjög gott og vikan hefur liðið ekkert smá hratt!
Þessi helgi er samt smá djammpása hjá mér. Ég er bara í leti og svona. Á Miðvikudaginn fór ég samt út með Lindu, Hönnu Lilju og Lilju á Víking. "Kemur á óvart" Og það var bara rólegt hjá okkur, voða gaman. Þeim fanst alveg hrikalega fyndið og sjokkerandi að eg hefði aldrei borðað sænskar kjötbollur í IKEA!! HAHA. Sænskar kjötbollur, einhver?!
En já á fimmtudaginn fóru svo Beta og Linda til Íslands. Og ég fór með Gabríel dúllu á róló-inn eftir að það varð dimmt ( Það dimmir hér kl 5 núna ) Og hann var engin smáá dúlla, hélt þéttingsfast í hendina á mér allann tímann, eða þangað til hann var kominn í fangið á mér þegar ég hélt á honum eins og apa á leiðinni heim!:)
Föstudagurinn var kósý, ég þreif voða fínt , borðaði með famelíunni og fór síðan með Emilíu út að labba! Svo hafði ég náð mér í helling af jólamyndum,talaði við mömmu mína í svon klukkutíma í símann. Mamma er best. Svo ég horfði á einhverjar af þeim og fór síðan snemma í háttinn. Það er ágætt svona einu sinni og einu sinni! Vaknaði um hádegi, skúraði aðalhæðina og fór að sækja Katrínu til vinkonu sinnar í Olm. Fór síðan með Emiliu niðrá Gare og í Ocean. Keypti mér einn kjól, einn bol og eyrnalokka! Hrikalega fínt !:)
Komum síðan heim í íslensk læri! Algjör draumur.
Núna er ég síðan uppí rúmi og er að horfa á Grey's og er að fara drattast á lappir til að fara út að skokka! Búin að vera þvilíkt dugleg í því!
Ætla síðan aftur snemma í rúmið í kvöld!

Hlakka ekkert smá til jólanna. Stalst til að hlusta á jólalög í gærmorgun meðan ég var að þrífa!
Ég er náttúrulega þvílíkt jólabarn.

Ætla heimta komment hérna.
Oooog Mamma og Pabbi eru best.

-Maren Jólabarn.

Ég kom til íslands!Maren Helga Guðmundsdóttir

ÍSLAND!
Jújú ég læsti blogginu mínu því ég ákvað að koma surprise til Íslands í síðustu viku!
Á föstudaginn 24 Október þá skelti ég mér til Íslands, án þess að nokkur vissi (nema Gummi )
Og ég labbaði inn bara heima hjá mér og gaf nokkrum smá svona fyrir hjartað!
En  það var bara gaman, borðaði og fór síðan út um kvöldið að koma liðinu á óvart!
Foreldrar mínir eru samt ekki búnir að vera mikið heima, afi mikið veikur og þetta varð einhvernveginn ekki eins og fríið sem ég hafði hugsað mér, samt alveg kósý:)!

Laugardagurinn var samt alveg bara BESTUR. Ég ákvað að koma Þóru minni á óvart þar sem hún átti afmæli þá og ég bankaði bara uppá! Hún fékk þvílíkt sjokk og varð ekkert smá ánægð! Sagði að ég væri besta afmælisgjöfin! Sem ég er náttúrulega bara sátt með;)

Sunnudagurinn fór í matarboð og rólegheit á skaganum. Kíkti líka út með Hauki mínum sem ég hafði saknað alveg óendanlega mikið!

Mánudagurinn : Fór til Gunna sem eldaði voða góðann mat handa mér og var voða góður við mig og leyfði mér að horfa á sexandthecity the movie! Og svo bara það vanalega og svo var Birkir svo yndislegur að sækja mig til Reykjavíkur því ég var föst þar!
 
Þriðjudagurinn var afskaplega nice, rólegheit og vinir!

Miðvikudagurinn var fínn, fór um kvöldi
ð suður að sinna nokkrum erindum og fór síðan að hitta Helgu mína og við skruppum að hitta Steinu! Voða fínt kvöld bara, þó ég hefði  viljað fara í bíó með Gumma mínum, en það gerist bara síðar!

Fimmtudagurinn fór í skírn og svo rúnt með Andrési! Hrikalega fínt!

Föstudagurinn var skammhlaupsdagur en ég var með Emilíu mína og við vorum að pæjast um daginn og svo var það partý og ball um kvöldið!
Ég held að mér sé óhætt að segja núna ,, ég er gömul“ !!

Laugardagurinn var æææðislegur! Ég byrjaði á því að fara til Rvk með Emiliu mína og við pæjuðumst þar, kíktum í búðir, ég fór síðan og kvaddi Þóru Björg mína sem var hrikalega erfitt.
Ég mætti síðan í Kokteilboð heima hjá mér þar sem Systrakvöld Frímúraranna var um kvöldið ! Var voða fín ! Svo kom Sigurbjörg mín og við vorum saman til að verða eitt, ÁsaBirna og Ólöf kiktu með okkur líka og þá var kjaftað, ég fór að kveðja afa gamla uppá spítala og svo kom Birkir var líka með okkur! Svo komu mamma og pabbi heim og við spjölluðum saman, ég svaf í hálftíma og svo fór ég í sturtu og beint útá Völl, Gummi var svo yndislegur að skutla mér!:*

Sigurbjörg kom líka með þessa frábæru setningu ,, MAREN! ÞÁ FARA LENDUR ÞÍNAR AÐ LOGA“
.. Miikið hlegið af þessu get ég sagt ykkur!

Og í morgun, kl hálf 6 var ég mætt uppá Flugvöll og flugið var ágætt, flugmaðurinn tók einhverja svaka dýfu þarna til að byrja með en þetta reddaðist allt!

Þó svo að fríið var ekki eins og ég var búin að búast við þá var voða gott að koma smá heim .

Það er svo gott að eiga góða að!:)

Jæja, takk fyrir allt saman!:*

-Maren sem er farin að meta ísland!

Maren Helga Guðmundsdóttir

Kreppa.
http://photos-f.ak.facebook.com/photos-ak-snc1/v350/234/79/691055769/n691055769_1406637_4288.jpg <-- Gunni og Maren.
Jæja mikið búið að ske, mikil kreppa í gangi og  mikið stress.
En já, Gunni og Haukur komu hingað í heimsókn og þá varð ég sko ánægð!
Þeir komu á miðvikudaginn og voru hér fram á sunnudag! Gerðum alveg helling skemmtilegt, aðalega djamm samt.
Föstudagskvöldið var samt eitt skemmtlegasta kvöld í langann tíma. Hrikalega gaman.
Og á Laugardagskvöldinu þá létum við DJ-inn á VÍKING hafa íslenskann disk, með SÍSÍ, SÓDÓMA og helling meir! Og við íslensku perurnar dönsuðum og sungum! Ógeðslega gaman!
Svo sótti ég strákanna uppá hótel á sunnudaginn og rúntaði með þeim, fórum út að borða og svo fórum við útá Flugvöll! Svo svaf ég og svaf og fór síðan út með stelpunum á PIZZA HUT um kvöldið.
Vikan hefur liðið frekar fljótt. Strax einhvernveginn kominn Miðvikudagur:)

Á föstudaginn fór ég á snjóbretti með Emilíu minni í FRAKKLANDI! Og það var sjúklega gaman.

Ég er í fýlu út í kreppumannin. Spurning hvort hún Ása Birna mín hringi ekki bara í hann og byðji hann að tjilla aðeins, annars kærum við hann.

Um helgina vall samt margt upp úr íslenskum perumunnum. Annað en æla.
Svona eins og ,,Ég er Lesbía, hver vill unlessbía mig?“ HAHAHA
nú skiljiði hvað ég meina þegar ég segist hugsa um að flytja til Síberíu til að forðast LesbíuKommúnuna sem er að myndast í Lúxemborg! HAHA


Ég er of mikill nörd.


Jæja Lots of love.
http://photos-h.ak.facebook.com/photos-ak-snc1/v347/50/83/1048486518/n1048486518_166975_6604.jpg
-Maren.

 

Tekin 2 x af löggunni, skrapp til Þýskalands og Frakklands og ísland af fara til fjandans!Maren Helga Guðmundsdóttir

Búin að búa í Lúxemborg síðan í Ágúst.
http://c1.ac-images.myspacecdn.com/images02/38/l_774b0b18ab8b4266a0e88d54a2f7d03c.jpg
Ísak Davíð sefur og sefur,svo finst okkur líka voða gott að kúra saman!  Stelpurnar voru allar að passa um helgina því flestir foreldrar fóru í burtu yfir helgina! Þannig að þær léku 2-4 barna eintæðar mæður. Mér fanst það voða fyndið og gekk á milli þeirra húsa og spurði hvernig gengi og montaði mig síðan á að ég væri í fríi! Svaf út á Laugardaginn og mætti til Eddu í pönnukökur sem Karitas endaði á að baka allt! Hrikalega gott veður, alveg sólbaðsveður og bongóblíða! Svo skeltum við okkur út um kvöldið, Linda, íris, Beta, Edda og Karitas voru samt að leika einstæðar mæður svo ég, Stefán, Eva,Hanna Lilja,Arndís og Lilja kíktum út.
Sunnudagurinn fór síðan bara í vöfflumat og svo þreif ég Porsche-inn í góða veðrinu! Langaði ekki að hanga inni! Tók alþrif á þetta og bónaði og alles!
Við Linda skeltum okkur síðan bæjar rölt og fórum á Pizza Hut. Svo var bara rólegt og kíktum á Scott‘s pub með Eddu.  Mánudaginn var einnig rólegur, cleaning lady kom og gerði húsið spikk and span!


 Ég fór að sækja krakkanna og lennti í umferðateppu aldarinnar og kom seint að sækja hann Gabríel minn, þetta var svona eins og í bíómyndunum. Hann sat einn inní stofu með kennaranum sínum og sá mig, hljóp til mín og hélt þéttingsfast um hálsinn á mér. Þvílíkt þreyttur og sáttur með að ég hafi komið. Held að hann hafi verið hræddur um að ég myndi ekki láta sjá mig.

Fór á æfingu í Dudelounge og hljóp síðan 7 km í einhverjum skógi, upp eitthvað fjall. Ég labba eins og gaur, þvílíkt vont að búa í 4 hæða húsi þegar maður er að kálast úr harðsperrum! HAHA!

Svo nennti ég engann veginn á eitthvað pöbbarölt þannig ég var bara róleg og hafði það kósý.
Vaknaði svo eldsnemma í gær og skutlaði Emiliu í flaututíma

Þriðjudagur : Work og fór síðan út að borða með Eddu, Lindu og Ársæli og svo kíktu Beta og Íris líka á Indverskann stað og svo var það að sjálfsögðu Viking Bar! Og við kíktum til Senningerberg nætursjoppuna því okkur langaði í mat.

Miðvikudagurinn:  Work og svo fór ég með Emiliu á fimleikaæfingu og á meðan þá hringdi Ársæll og sagðist ekki hafa hugmynd um hvar hann væri, hann var staddur í Strassen! Svo ég keyri þangað og næ
í hann og hann eltir mig til Dudelange og svo heim. Um kvöldið ætlum við síðan heim til hans og svo niður í bæ. En hann tók vitlausa beygju af hraðbrautinni og við endum í  Þýskalandi! Svo keyrum við til baka og þá stoppar löggan okkur 2 x! Og þökk sé sleikjulegu brosi og áhyggjufullri röddu hjá mér sluppum við í bæði skiptin við sekt! Ég tók alveg ,,Ohh god we are so sorry, it won‘t happen again, I‘m so sad.“ Hahah!
Heyrðu svo fór ég heim um nóttina, vaknaði grútsyfjuð og sæt morguninn eftir. Um kvöldið fékk ég svo þessa ÆÐISLEGU augnsýkingu og ég verð að segja að þetta hlítur að vera ljótasta augnsýking aldarinnar!  

Föstudagur: Vaknaði með þennann æðislega gula graftarvökva yfir hægra auganu og gat ekki opnað það! Skutlaði Emiliu í flaututíma og fór niður að sofa. Svo var það vinna og dúllerí. Mátti ekki fara á djammið útaf þessari sýkingu, hún er svo smitandi!

Laugardagurinn: Skaust með Eddu,Lindu og Ársæli til frakklands að versla, borgin var gullfalleg! Fórum síðan aftur heim til LÚX og versluðum þar! Ég var síðan að passa um kvöldið hjá fólki í Strassen, ná mér í smá auka evrur. Bara af því að hún er svona HÁ!;)

Sunnudagurinn fór í að sofa til 1 og svo í þynnku McDonalds með stelpunum! Fórum svo til Gonderange og sóttum Ársæl og rúntuðum um hina æðislegu Lúxemborg!

Núna sit ég bara og bíð eftir að Gunni og Haukur komi á miðvikudaginn! Gunni er að koma með draslið sem ég gleymdi og ætlar líka að koma með 2 RAUÐAR VOGA ÍDÝFUR!! Og smjörva! Mér til mikillar gleði!
Ligg reyndar og var að taka myndir af okkur Emiliu minni!

Jæja á síðustu dögum hef ég basicly verið stoppuð af löggunni 2 sinnum! Skroppið til Þýskalands og Frakklands og verslað!

Kveðjur úr leti og rigningu!
Maren Egilsdóttir.

Maren elskar lífið í Lúxemborg!Maren Helga Guðmundsdóttir

Maren er loksins komin með netið!
Maren hefur líka upplifað að vera einstæð 3 barna móðir í nokkra daga!
http://a824.ac-images.myspacecdn.com/images01/105/l_ded23882eaeec0ff91e96c54dd60969f.jpg
Maren og HelgaBjörg.

Jæja síðan þann 10 september hefur maaargt skéð, ég til dæmis fór út að borða, afmælismat á fimmtudeginum og við buðum 3 nýjar perur velkomnar, borðuðum á Chi Chi‘s! Kemur á óvart.
Á föstudeginum fluttum við svo til Weiler frá Junglinster, í glænýtt mjög flott hús í frábæru hverfi!

Um kvöldið var síðan farið á djamm með stelpunum, kíktum á Viking ( okkar stað ) og fleiri staði, skemmtilegt kvöld! Tókum síðan leigubíl heim!
Laugardagurinn fór í að taka upp úr kössum, kíkti til Lindu og svo var rólegur ísrúntur um kvöldið með stelpunum. Mjög gott.
Sunnudagurinn var fullbókaður, þrif, tiltekt og eldamennska áttu sér stað! Ég er svo dugleg sjáiði til;)

Um kvöldið fór ég með Helgu,Lindu,Eddu og Stefáni á Poolstað og við ætluðum í Pool en við erum öll svo fjandi léleg þannig við sátum bara og spjölluðum, þau fengu sér bjór. Ég er náttúrulega svo stilt!
Vikan er síðan búin að líða þvílíkt hratt!
Alla daga eru sirka 30 iðnaðarmenn að vinna áfram í húsinu og garðinum! Allir annað hvort ljótir og með fjólublátt hár eða 60 ára gamlir svo maður hefur ekkert að horfa á !! HAHA!

Elín fór upp á spítala á fimmtudagsmorguninn kl 05:30! Þannig ég vaknaði þá, þvííílíkt fersk eða þannig.
Svo tóku Beta og Biggi krakkanna í skólann fyrir mig og ég var bara í því að svara spurningum iðnaðarmannanna! Sótti krakkana síðan kl 3. Eldaði síðan þennann svakalega kjúkkling með rjóma pipar sveppasósu! Snillingur ég;)

Þórður svaf síðan uppá spítala hjá Elínu og Ísak litla.
Stelpurnar kíktu til mín því ég var að passa, ég plokkaði Helgu og við höfðum það kósí.  Ég kúrði uppí hjónó með börnunum mínum yfir nóttina. Föstudagsmorguninn voru iðnaðarmenn mættir kl 07:00 og þá akkurat vaknaði Gabríel ferskur og við drifum okkur á fætur, horfðum á barnaefnið og borðuðum. Krakkarnir voru í fríi í skólanum þann dag.

Ég svæfði síðan börnin mín og var svo uppgefin að ég sofnaði líka. Laugardagurinn var síðan bara versla, versla, versla! Fór með Lindu niðrí bæ og það var yndislegt veður! Hittum síðan Eddu og Helgu á Chi Chi‘s ! Komum aftur til Weiler, fóum rölt, kíktum til Eddu og Helgu og ég skrapp síðan á Follia, pikkaði upp pizzur og borðaði með Þórði því krakkarnir komu sér í mat annarstaðar.

Þórður gisti aftur uppá spítala og ég svæfði börnin, hennti í nokkrar þvottavélar og kúrði uppí hjónó með Gabríel litla:) !
Vaknaði síðan með Gabríel kl 07:00.

Við Emilia skruppum síðan í Dell Haize og versluðum inn fyrir vikuna. Ég kom heim, ryksugaði, skuraði og þvoði þvott! Gífurlega dugleg en alveg svakalega þreytt !
Svo komu Elín og Ísak Davíð heim af spítalanum, en eins miklir snillingar þau eru þá gleymdu þau töskunni á bílaplaninu! Haha þannig ég fór að ná í töskuna, konurnar í mótökunni hlógu bara af mér :)! Heil fjölskylda og voðalega kósý saman!

Um kvöldið kíkti ég svo á Scott‘s pub með Lindu,Eddu, Íris og Betu! Þar var lært að segja það allra nauðsynlegasta á frönsku, svona eins og ..
*Kysstu mig.
*Þú ert heitur

.. ooog fleira.
Þegar ég kom heim, nennti ég ekkert svakalega að fara í náttföt og svaf næstum nakin og svona til að koma því á framfæri þá eru gluggahlerarnir tímastilltir og fara upp klukkan 07 á morgnanna! Og ég, snillingur, vaknaði ekki um morguninn kl 07 en svo þegar ég vaknaði, var maður að vinna í blómabeðinu akkurat fyrir framan gluggann minn! Þeir hafa pottþétt slegist um gluggann hjá stelpunni sem svaf berbrjósta!

Svo í gær var haft það kósý, tók reyndar nokkrar þvottavélar á þetta og náði síðan í krakkanna í skólann og fór með Emiliu á fimleikaæfingu og shit mig langaði á æfingu!
Ætla fara skoða þetta sem fyrst! Svo eftir mat kíkti ég McFlurry rúnt með Eddu og Lindu! Svo kíkti ég í kósý!

Ég hef upplifað það að vera einstæð 3 barna móðir í 4 daga og shit þetta tekur á!
Þetta er alveg svakalegt!
http://a27.ac-images.myspacecdn.com/images01/30/l_513a422b4ce4a6f0ab053fc8c562e04a.jpg
Linda,Maren og Helga!
Maren sem ætlar að skreppa til Hollands, Belgíu, Þýskalands og Frakklands á næstunni að versla kveður í bili!:)

..Heimta komment!

18 ára! ekki á hverjum degi sem maður verður sjálfráða.Maren Helga Guðmundsdóttir

ÉG Á AFMÆLI!

...ákvað að byrja að segja öllum það.
http://a166.ac-images.myspacecdn.com/images01/55/l_59269a8221837a98e8051ff7f606fc8d.jpg
Jæja lífið í hinni gullfallegu Lúxemborg er alltaf jafn fullkomið!
Ég vakna í kringum 10 á morgnanna og fæ mér ða borða og svo byrja ég daginn á þvotti, svo er ég að dúlla mér til kl hálf 3 og þá fer ég til Lúxemborgar sem er höfuðborg landsins Lúxemborgar!! Haha
og sæki krakkanna!:)
En síðustu dagar voru þannig að á föstudaginn fórum stelpurnar og hittumst heima hjá Lilju og höfðum letikvöld og ákváðum hvernig Laugardagurinn átti að vera, svo var farið snemma heim.
Laugardagurinn fór í það að versla og vera með Emilíu minni og smá með Evu og Helenu, um kvöldið fór ég síðan til Weiler, sótti Helgu og Eddu og við fórum til Cents og borðuðum þar hjá Kaju, hún eldaði snilldar spaghetti bolognes!
Svo var hafið kvöldið með hvítvíni og fl! Svo skelltum við okkur í Tívolíið, sumir urðu fullari en aðrir og komu með snilldar gullkorn og jafnvel sumir gerðust lellur! HAHA!
Eftir Tívolíið var síðan haldið á barinn Viking og þar var dansað og sumir drukku meira og sumir töluðu bara í símann!
Eftir það var skutlað stelpunum heim, ég sótti porsche-inn til Kaju og keyrði til Junglinster!
Sunnudagurinn fór í að hjálpa Elínu Óléttu og svo fór famelían út að borða=) Æðislegann veitingastað rétt hjá landamærum Þýskalands, þannig þar var töluð Þýska!
Svo var farið heim og talað alltof lengi á netinu! Er svolítið mikið í því.
Mánudagurinn var voða tíbískur. Þreif smá og um kvöldið fór ég út með Helgu, Eddu og Kaju! Skelltum okkur smá rúnt, fórum á all in og svo var keyptur McFlurry!
ÉG KANN AÐ META ÍSLAND ENN MEIRA NÚNA!
.. það er engin góð ísbúð í Lúxemborg.

Svo var farið heim að sofa!
http://a755.ac-images.myspacecdn.com/images01/30/l_76768141cd0e321e1aaba22d176d1aa2.jpg
Jæja, ætla njóta afmælisdagsins því það er 27 stiga hiti og sól:D!

Bíð líka spennt eftir afmælisgjöfinni frá mömmu og pabba og litla bróðir(sem þykist ekkert sakna systir sinnar) bullshit.
http://a906.ac-images.myspacecdn.com/images01/71/l_eb0ed032b10aa20956ac23050daa84b9.jpgSæta kóngulóin utan á glugganum mínum!
-MAREN 18 ÁRA ER OUT!

Bonjour!Maren Helga Guðmundsdóttir

Bonjour!
http://a415.ac-images.myspacecdn.com/images01/30/l_c4271e85ce34c5acdc7236067ff67e3e.jpg
Vikan er búin að líða þvílíkt hratt!
Síðustu helgi fór ég að versla og um kvöldið hitti ég aðra perur (Auperur) og kvöldið byrjaði á því að Edda sótti mig og við fórum heim til Helgu og þar voru 7 perur! Við vorum þar með smá partý og það var rosa gaman! Síðan pöntuðum við 3 leigubíla og skeltum okkur niður í bæ. Fórum fyrst á Jahbar því Viking var lokaður og fórum síðan á Byblos og þar var dansað!

Edda snéri sig á ökkla og kom með mér heim eftir djammið! Gisti bara hjá mér í Junglinster.
Sem var í góðu lagi því Taxinn kostaði heilar 60 EVRUR!
Þannig 30 evrur hvor var í lagi:)
Daginn eftir vakti Gabríel mig kl 9. 09:00. Aðeins örfáum klukkutímum frá því að við komum heim! En ég fór upp, setti mynd í tækið, talaði aðeins við Þórð og fór aftur niður að sofa meria. Edda fór síðan upp á spítala að láta tjékka á fætinum.
Fjölskyldan mín fór í afmæli og ég nennti ekki með:) Á meðan þreif ég helling hátt og lágt án þess að þau vissu af, skrifaði síðan miða og fór út að labba. Þegar ég kom heim var Elín gjörsamlega í skýjunum! Þórður auðvitað líka! Þau vou svakalega ánægð!:)
Síðan fór ég bara fljótlega uppí rúm og horfði á Grey's !

Mánudagurinn fór í að taka smá þvott og smá stúss! Keyrði síðan á Porche-inum til Sandweiler að hitta Hildi og segja bless við hana áður en hún færi aftur til Íslands!

Þriðjudagurinn: Tók smá til, þreif þvott og svona stúss, Sótti síðan krakkkanna í skólann og fór í matarbúðina!

Miðvikudagurinn fór í að taka smá til í barnaherbergjunum og versla, svo eldaði ÉG æðislegann mat um kvöldið! Þau urðu ekkert smá stolt! Enda var ég að taka áskorun Þórðar um að elda surprise! HAHA!
Um kvöldið fór ég síðan út með Kæju, Helgu, Eddu og Arndísi:)! Fórum rúnt og svo fór Arndís heim og við hinar skeltum okkur í Tívolíið! Fórum bara í 2 tæki því við ætlum að fara á föstudaginn og vera allt kvöldið!:)

Í dag vaknaði ég svo og hjálpaði Elínu því hún er kasólétt! Svo fór ég og sótti krakkanna, fór í búð og svo horfðum við gríslingarnir á Grease! Svo hennti ég þeim í rúmið og svona!

Helgin er plönuð! Ég ætla á morgun að fara í Ocean að versla mér eitthvað og svo ætlum við stelpurnar auðvitað í tívolíið. Svo var ég búin að ákveða að fara niður í bæ að versla og borða á Chi Chi's með Helenu og Evu og svo um kvöldið ætlaði ég með hinum stelpunum í bíó!
http://a479.ac-images.myspacecdn.com/images01/66/l_13343268737e07d28f88cf75d6b692fe.jpg

-- Hera Guðrún og Ég daginn áður en ég fór til lúx:*

Anyways.
Langaði að segja ykkur að ég elska lífið hérna!

-Maren Au-Pera!

Ég er komin eftir 12 tíma seinkun!!!:DMaren Helga Guðmundsdóttir

Ég er komin til Junglinster!

Gærdagurinn var freekar misheppnaður.
Vaknaði 07:00 og fór að halda áfram að gera mig til. Klára pakka, finna flugmiðann, passann, sækja reikning í bankann, breyta lykilorðum í bankanum og kaupa hitt og þetta fyrir ferðina! Klukkan 9 kom síðan í ljós að ferðinni var seinkað um 3 tíma. Þannig flugið átti ekki að vera fyrr en 6. Allt í goðu með það.
Tók bara lengri tíma í að pakka og svona. Ekkert stress.

En svo þegar ég var að fara klára. Fékk ég sms frá Iceland Express um að fluginu væri seinkað til 02:15 !!!!
FOKKÍN 02:15.

Og ég var ekki sátt. En svona er þetta. Ég tók minn tíma í að vera pirruð og kvaddi bara aftur. Aldís kom með pizzu og við borðuðum hana og svo fór ég bara á rúntinn, kíkti út með Huldu, fór til Birkis og svo kvaddi ég Aldísi aftur og svo bara heim. Upp í bíl og við brunuðum út á Flugvöll. Pabbi skutlaði mér ,Hildi og Báru Valdísi:)!
En þegar við komum var búið að seinka fluginu um hálftíma! Eða til 02:45 !!
Við fórum, versluðum aðeins í fríhöfninni og Bára Valdís horfði á LazyTown.
Ég sofnaði í korter á flugvellinum og svo var haldið út í vél. Þar var fluginu seinkað um hálftíma og biðum við í 45 mín útí vél!! Þannig við lögðum ekki af stað fyrr en klukkan var orðin 03:20!

12 TÍMA SEINKUN allt í allt.

Ég náði að sofna smá í vélinni. Ekki mikið samt. Við lenntum kl 08:25 á staðartíma og þá var haldið frá Þýskalandi til Luxembourg.
Ég bý núna í Junglinster og flyt til Weiler eftir 2 vikur!
Kom heim, svaf til að verða 5 og fór þá að sofa. Svaf til 5 og fór þá í sturtu. Náttúrulega ekki gott að sofa bara í klt á 27 tímum!!
Ég fór út að leika með krakkanna, trambólínið og svo í fótbolta! Mjög gaman =)

Veðrið er æðislegt hérna! Sól og mikill hiti! Núna er sólin að setjast og það er alveg logn:D

Þórður og Elín eru alveg frábær og krakkarnir æðislegir. Gabríel litli hengur á mér eins og plástur!
Emilía og Katrín eru voða stiltar. En verða það ekki mikið lengur þegar þær hafa borðað allt nammið sem ég kom með! Hahaha!

Blogga um helgina aftur :)!

Kveðjur frá sólinni og Luxembourg!

-Maren Lúx Pera!

Textareitur

Crosses.
Don't you know that I'll be around to guide you
Through your weakest moments to leave them behind you
Returning nightmares only shadows
We'll cast some light and you'll be alright for now
Crosses all over, heavy on your shoulders
The sirens inside you waiting to step forward
Disturbing silence darkens your sight
We'll cast some light and you'll be alright for now
Crosses all over the boulevard
The streets outside your window overflooded
People staring they know you've been broken
Repeatedly reminded by the looks on their faces
Ignore them tonight and you'll be alright
We'll cast some light and you'll be alright.

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Maren Helga Guðmundsdóttir
  • Staður: Lúxemborg
  • Heimilisfang: Weiler La Tour, Roses Dahlia.
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: er á au-Pera í Lúxemborg!
  • Hjúskaparstaða: Er í fínu lagi!;)
  • Um mig: mareen19@hotmail.com
  • Annað: Hvað annað?

Atburðarteljari

Undirsíðukubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur